Search
Close this search box.

Bjarkarhlíð

Einstaklings

Einstaklingsráðgjöf

Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Markmið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis.

Bjarkarhlíð býður áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri. 

Strakur

Samstarfsaðilar

Í Bjarkarhlíð er boðið upp á samhæfða þjónustu samstarfsaðila á einum stað; einstaklingsviðtöl, lögfræðilega ráðgjöf, félagslega ráðgjöf og stuðning.

Lögreglukona er á staðnum og veitir upplýsingar um ferli mála í réttarvörslukerfinu og kemur málum í farveg innan lögreglunnar.

Nánar >>

Rain

Stuðningshópar

Bjarkarhlíð er með stuðningshópa fyrir þolendur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.

Hóparnir eru kynjaskiptir og hittast einu sinni í viku undir handleiðslu tveggja fagmenntaðra ráðgjafa, í tvo tíma, í alls 10 skipti. Aðgangur er gjaldfrjáls.

Nánar >>

Fréttir

Ferlið í Bjarkarhlíð

Bjarkahlid 21 03 01 29266+fundarherbergi

Lágþröskuldaþjónusta

Bjarkarhlíð er lágþröskuldaþjónusta og ekki þarf tilvísun til að koma í fyrsta viðtal. Ráðgjafi tekur greiningar- og móttökuviðtal við þjónustuþega þegar þeir koma í Bjarkarhlíð. Venjan er að þjónustuþegi hitti ráðgjafann í 1-3 skipti og í framhaldinu er þjónustuþega boðinn áframhaldandi stuðningur og ráðgjöf hjá þeim aðilum sem best þykja til þess fallnir að vinna með afleiðingar þess ofbeldis sem hann hefur orðið fyrir.

Samstarfsaðilar

Algengast er að Kvennaathvarfið og Stígamót hitti viðkomandi í nokkur skipti í Bjarkarhlíð en bjóði síðan upp á framhaldsviðtöl á starfsstöðvum sínum. Lögreglan, lögfræðingar og aðrir samstarfsaðilar bjóða upp á alla sína þjónustu í Bjarkarhlíð.

Bjarkahlid 21 03 01 29273+biðstofa

Birtingarmyndir ofbeldis

„Ég veit ekki hvort ég á heima hérna…“
Einstaklingar sem leita til Bjarkarhlíðar eru alls konar en öll eiga þau sameiginlegt að hafa sætt ofbeldi og vilja vinna með afleiðingar þess. Birtingarmyndir ofbeldis eru ólíkar og öll sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eiga heima í Bjarkarhlíð. Sem dæmi um birtingarmyndir ofbeldis má nefna:

Til dæmis stjórnun, kúgun, niðurlæging, sjálfsvígshótanir, einangrun, morðhótun, ógnandi hegðun og gaslýsing þar sem brotaþoli fer að efast um minni sitt og upplifanir.

Til dæmis að hrinda, ýta, slá, halda, kýla, sparka í, brenna, drekkja, kæfa, kyrkja.

Til dæmis að þvinga til kynferðislegra athafna, pressa/suða/hóta, vakna við nauðgun/“kynlíf“, byrlun og kynfrelsi ekki virt.

(e. stalking): til dæmis að elta manneskju og/eða sitja fyrir henni gegn vilja hennar, njósnir og ofsóknir, staðsetningarbúnaði komið fyrir í síma eða ökutæki.

Til dæmis að skemma muni, skerða aðgang að fjármunum, veita ekki upplýsingar um fjárhagslega stöðu, fjárhagslegt óöryggi, krafa um lántöku og skuldsetning einstaklings gegn hans vilja.

Saman

Til dæmis aðstoð haldið viljandi frá viðkomandi, lyfjagjöf ekki sinnt sem skyldi o.fl.

Misnotkun á samfélagsmiðlum, hótanir gegnum miðla, persónustuldur. Stafrænt kynferðisofbeldi er til dæmis myndbirtingar eða hótanir um slíkt á samfélagsmiðlum.

Hagnýting á bágum aðstæðum einstaklings til kynlífsþjónustu. Nauðungarvinna sem oft er nefnt nútímaþrælahald fellur einnig í þennan flokk.

Einhvers konar líkamlegt, andlegt og/eða kynferðislegt ofbeldi sem gerist inni á heimilinu, hvort sem það beinist gegn barni eða ekki.

Ofbeldi og áreitni sem beinist t.d. að uppruna, kyni, kynþætti, kynhneigð, kynvitund, skerðingu eða annarri stöðu viðkomandi.

0
Árið 2022 komu 978 einstaklingar í fyrsta viðtal í Bjarkarhlíð

Umsagnir