Stuðningur vinnustaða vegna ofbeldis í nánum samböndum
Atvinnurekendur geta skipt sköpum með því að styðja starfsfólk sem er að verða fyrir ofbeldi og veita svigrúm til að sækja nauðsynlega þjónustu.
Merki um að starfsmaður gæti verið að verða fyrir ofbeldi
- Auknar fjarvistir, óstundvísi eða skert einbeiting.
- Tilfinningalegt uppnám, einangrun eða skyndileg breyting á hegðun og/eða útliti
- Óvenjumikið magn símtala, skilaboða eða óvelkomnar heimsóknir geranda á vinnustað.
- Vísbendingar um að maki fylgist með eða reyni að hafa óæskileg samskipti við starfmanninn.
- Endurtekin meiðsli eða ótrúverðugar skýringar á þeim.
Þekktu merkin – Fræðsla (pdf)
Leiðbeiningar fyrir mannauðstjóra (pdf)
Þegar samstarfsfólk býr við heimilisofbeldi – fræðsla (pdf)
Leiðbeiningar fyrir starfsfólk sem býr við heimilisofbeldi – fræðsla (pdf)
Skráning á opinn fræðslufund Varðar 17. mars